Ófögur er Hlíðin af "skagafjodur.com" 23. apríl sl.

Óvitaskapur og umhverfisspjöll í Skógarhlíð

Nýlega birtist Skagafjörður.com frétt um ófyrirleitinn ökumann sem olli skemmdum á “grænu svæði” við Strandveginn austan Minjahússins. Því miður virðist sem fleiri hafi litla tilfinningu fyrir umhverfi sínu, eða taki tillit til samborgaranna, því í gær bárust Sk.com myndir og texti varðandi umhverfisspjöll í Sauðárhlíðinni ofan Sauðárkróks.

Þar hafa verið unnað ljótar skemmdir á göngustígum og vegarslóðum með akstri bíla og torfæruhjóla, eins og sést á meðfylgjandi myndum. Ekki hefur ökumaður bifreiðar hætt fyrr en hann komst alls ekki lengra, búinn að rista upp göngu- og skokkstíg, fastur á grjóti og búinn að rífa stuðarann undan bílnum.

Ökumenn torfæruhjóla hafa fengið til afnota svæði við Gönguskarðsá, sem þeir eru búnir að gera frábærlega vel úr garði. Vonandi láta þeir sér það svæði duga en níðast ekki á göngu- og útivistarstígum Sauðárkróksbúa.

Nú þegar frost er að fara úr jörð er landið víða mjög viðkvæmt og þau sár sem myndast geta orðið afar ljót og haldast þó þorni, til mikils ama og óþæginda fyrir útivistarfólk. Mikilvægt er að ökumenn sýni tillitsemi og fari alls ekki um þar sem hætta er á aurbleytu.

Já þetta er ljótt að sjá og sýnir mikla vanvirðingu fyrir umhverfinu og samborgurunum.

 


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Valgeir Steinn Kárason
Valgeir Steinn Kárason
Áhugamál náttúruvernd og umhverfismál. Látum náttúruna njóta vafans.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband