Til hamingju Sarah og Benedikt

Það hefur verið gaman að fylgjast með "Söru", kjarnakona, sem búin er að sýna að hún var tilbúin í þetta sund. Fyrsta konan til að synda Grettissundið - flott! Svolítið skondið samt að það skuli vera kona frá Suður-Afríku, úr hitanum þar, sem afrekar þetta fyrst kvenna.
mbl.is Syntu Grettissund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórkostlegt vandamál

Utanvegaakstur þessara torfæritækja er orðið eitt mesta umhverfisvandamálið. Mikill fjöldi "óvita"  geysist um allt, utanvega, á göngustígum, reiðvegum og valda gífurlegum skemmdum og sjónmengun í ósnortinni náttúru. Þá er eins og margir þessara ökumanna hafi mesta ánægju af því að fara um landið þegar frost er að fara úr jörðu, jörðin viðkvæmust og skemmdirnar verða mestar. Nú verður að gera átak og fræða eigendur þessara tækja. Ýmis félagasamtök bifhjólafólks hafa unnið gott starf við fræðslu og útgáfu, en betur má ef duga skal.
mbl.is Aka utan vega í Árnessýslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúleg dómaramistök

Vissulega hefðu Chelseamenn átt að klára leikinn og standa vaktina fram á lokamínútu framlengingar. En það er með ólíkindum af dómurum leiksins að sleppa augljósum tveimur vítum og öðrum tveimur "venjulegum" - þvílíkur skandall !
mbl.is Guus Hiddink: Ósanngjarnt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki bara hálendisleiðir viðkvæmar

Nú er um að gera að allir ökumenn, sem fara um malarvegi þar sem hætta er á aurbleytu, sýni tillitssemi og fari alls ekki vegi eða slóða. Einnig er mjög mikilvægt að torfæruhjóla og fjórhjólafólk haldi aftur af sér, valdi ekki skemmdum og aki alls ekki utan vega hvorki á næstu vikum eða á öðrum tímum.
mbl.is Hálendisheiðar lokaðar vegna aurbleytu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ófögur er Hlíðin af "skagafjodur.com" 23. apríl sl.

Óvitaskapur og umhverfisspjöll í Skógarhlíð

Nýlega birtist Skagafjörður.com frétt um ófyrirleitinn ökumann sem olli skemmdum á “grænu svæði” við Strandveginn austan Minjahússins. Því miður virðist sem fleiri hafi litla tilfinningu fyrir umhverfi sínu, eða taki tillit til samborgaranna, því í gær bárust Sk.com myndir og texti varðandi umhverfisspjöll í Sauðárhlíðinni ofan Sauðárkróks.

Þar hafa verið unnað ljótar skemmdir á göngustígum og vegarslóðum með akstri bíla og torfæruhjóla, eins og sést á meðfylgjandi myndum. Ekki hefur ökumaður bifreiðar hætt fyrr en hann komst alls ekki lengra, búinn að rista upp göngu- og skokkstíg, fastur á grjóti og búinn að rífa stuðarann undan bílnum.

Ökumenn torfæruhjóla hafa fengið til afnota svæði við Gönguskarðsá, sem þeir eru búnir að gera frábærlega vel úr garði. Vonandi láta þeir sér það svæði duga en níðast ekki á göngu- og útivistarstígum Sauðárkróksbúa.

Nú þegar frost er að fara úr jörð er landið víða mjög viðkvæmt og þau sár sem myndast geta orðið afar ljót og haldast þó þorni, til mikils ama og óþæginda fyrir útivistarfólk. Mikilvægt er að ökumenn sýni tillitsemi og fari alls ekki um þar sem hætta er á aurbleytu.

Já þetta er ljótt að sjá og sýnir mikla vanvirðingu fyrir umhverfinu og samborgurunum.

 


Höfundur

Valgeir Steinn Kárason
Valgeir Steinn Kárason
Áhugamál náttúruvernd og umhverfismál. Látum náttúruna njóta vafans.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband